Vönduð lagaleg greining
Vönduð lagaleg greining er forsenda afraksturs í störfum lögfræðinga. Lausn Jónsbókar er aðgengileg á vefnum og í Word, skrifar í þínum stíl og styður þig í allri lagalegri vinnu.
Bóka kynningu
Lausn sem er sérsniðin að þörfum lögfræðinga
Jónsbók er sérstaklega hönnuð fyrir lögfræðinga og er í notkun hjá leiðandi lögmannsstofum bæði innanlands og utan, hjá tryggingarfélögum og hinu opinbera. Sífellt fleiri bætast í hópinn. Hafðu samband og kannaðu hvort Jónsbók henti þér eða þínu teymi.
Rannsóknir
Fáðu svör á nokkrum sekúndum
Spurðu að hverju sem er sem tengist lögfræði. Jónsbók leitar í öllum réttarheimildum, skilar þér skýru svari og beinir þér á opinberar vefsíður.
Lesa meiraSkjöl
Uppkast sem þú getur treyst á
Útbúðu minnisblöð, samninga og greinargerðir sem byggjast á þínum sýnishornum. Jónsbók skrifar eins og þú, í réttu formi og með þínum áherslum.
Lesa meiraTafla
Ber saman fjölda skjala á einum stað
Skjalaleit
Leitaðu í íslenskum-, norrænum- og Evrópurétti
Færni
Útbýr skjöl í þínum ritstíl og með þínum áherslum
Við trúum því að tíma lögfræðinga sé best varið í dýpri greiningu og strategíska hugsun. Þess vegna bjuggum við til Jónsbók.
Algengar spurningar
Jónsbók er gervigreindarlausn sem er sérstaklega hönnuð fyrir lögfræðinga. Gagnagrunnur Jónsbókar byggir á öllum helstu réttarheimildum.
Jónsbók hefur aðgang að lagalegum gagnagrunni Íslands, Ungverjalands, Króatíu og Noregs. ESB-réttur og dómar Evrópudómstólsins eru sömuleiðis aðgengilegir í Jónsbók.
Gögnin þín eru dulkóðuð í geymslu og flutningi. Við notum aldrei gögnin þín til að þjálfa líkön. Öll gögn eru geymd í öruggum evrópskum gagnaverum með ströngum aðgangsstýringum. Þá hefur Jónsbók staðist utanaðkomandi öryggismat.
Já. Microsoft Word-viðbótin okkar gerir þér kleift að spyrja spurninga og eiga við texta án þess að yfirgefa skjalið sem þú vinnur að í Word.
Jónsbók vísar í tiltekin lög, lagagreinar og dóma í hverju svari. Allar tilvísanir tengja þig beint við opinberar heimildir þannig að þú getir staðfest þær samstundis.
Jónsbók styður PDF, DOCX, EML, MSG og hreinar textaskrár. Þú getur hlaðið upp samningum, minnisblöðum, dómsgögnum og öðrum lögfræðiskjölum til greiningar.
Við bjóðum upp á kynningarfundi fyrir lögfræðiteymi og einstaklinga sem hafa áhuga á Jónsbók. Bókaðu kynningu til að sjá hvernig Jónsbók getur nýst þér og þínu teymi.
Bókaðu kynningu hjá teyminu okkar. Við leiðum þig í gegnum kerfið og hjálpum þér að hefjast handa með Jónsbók.
Hafðu samband
Fáðu aðgang að Jónsbók og finndu hvernig hún getur auðveldað lögfræðilega vinnu.