Raxiom ehf., kt. 570724-1180, Hlíðarvegi 16, 200 Kópavogi („félagið“), ber ábyrgð á að vinnsla persónuupplýsinga í starfsemi sinni sé í samræmi við ákvæði laga um persónuvernd og miðlun persónuupplýsinga nr. 90/2018 og ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679, um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga, sem og þær reglur, tilmæli og leiðbeiningar sem gilda um persónuvernd á hverjum tíma.
Persónuverndarstefna þessi hefur það markmið að upplýsa einstaklinga um hvernig félagið vinnur persónuupplýsingar sem ábyrgðaraðili. Raxiom ehf. gegnir stöðu vinnsluaðila fyrir áskrifendur sína sem gegna stöðu ábyrgðaraðila gagnvart notendum.
Tegundir persónuupplýsinga sem er aflað
Félagið safnar eftirfarandi upplýsingum um notendur Jónsbókar:
- Netfang.
- Upplýsingar um innskráningarsögu.
- Tölfræðilegar upplýsingar um notkun Jónsbókar.
- Endurgjöf notenda á svör Jónsbókar.
Félagið safnar einnig eftirfarandi upplýsingum í öllum tilvikum sem ábyrgðaraðili
- Skilaboð og önnur samskipti sem berast á hallo@jonsbok.ai
- Tengiliðaupplýsingar við viðskiptavini
Hvaðan fær félagið persónuupplýsingar?
Félagið fær persónuupplýsingar frá notendum þegar þeir skrá sig inn á Jónsbók og eiga samskipti við hugbúnaðinn.
Hvers vegna er persónuupplýsinga aflað?
Félagið aflar persónuupplýsinga til þess að;
- Uppfylla kröfur laga sem um starfsemina gilda.
- Uppfylla samningsskyldu um veitta þjónustu.
- Fylgjast með að Jónsbók virki sem skyldi og tryggja upplýsingaöryggi.
- Eiga samskipti við notendur og ábyrgðaraðila.
- Bæta vörur og þjónustu.
Í hvaða tilgangi eru persónuupplýsingarnar notaðar?
Félagið vinnur persónuupplýsingar til að efna samning við viðskiptavini sína og til að gæta lögmætra hagsmuna félagsins er varða að bæta vörur og þjónustu félagsins sem og til að fylgjast með virkni Jónsbókar og tryggja að hugbúnaðurinn virki sem skyldi.
Samtöl við Jónsbók eru ekki notuð til að þróa mállíkön.
Hversu lengi eru persónuupplýsingar varðveittar?
Félagið varðveitir persónuupplýsingar á meðan samningssambandi stendur, eins lengi og lög kveða á um eða lögmætir hagsmunir félagsins krefjast. Mismunandi varðveislutími getur átt við eftir tegund og eðli upplýsinganna.
Við geymum tengiliðaupplýsingum sem safnað er almennt ekki lengur en fjögur ár frá lokum viðskipta eða eftir að viðskiptasambandi lýkur, ef um viðvarandi viðskiptasamband er að ræða. Samskipti við Jónsbók eru ávallt geymd í 30 daga en annars þar til notandi eyðir þeim eða lokar aðgangi sínum. Varðveislutími annarra upplýsinga er miðaður við fyrningarfrest krafna sem getur almennt mest orðið 14 ár.
Öryggi persónuupplýsinga
Öryggi og meðhöndlun upplýsinga lýtur eftirliti ásamt því að tæknilegar og skipulagslegar ráðstafanir eru gerðar til að tryggja viðunandi öryggi persónuupplýsinga og ábyrgða meðhöndlun þeirra.
Þagnarskylda hvílir á starfsfólki félagsins samkvæmt reglum félagsins.
Verði öryggisbrestur við vinnslu persónuupplýsinga hjá félaginu er unnið samkvæmt verklagi félagsins þar um og í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Réttindi hins skráða
Samkvæmt persónuverndarlögum eiga einstaklingar sem félagið vinnur upplýsingar um rétt á að óska eftir aðgangi að persónuupplýsingum sínum, leiðréttingu, eyðingu, miðlun og takmörkun vinnslu:
- Réttur til aðgangs að persónuupplýsingum
- Réttur til leiðréttingar persónuupplýsinga
- Réttur til eyðingar persónuupplýsinga
- Réttur til takmarkaðrar vinnslu
- Réttur til flutnings gagna
- Réttur til mótmæla gegn vinnslu
Ef einstaklingar hafa spurningar eða athugasemdir við meðferð persónuupplýsinga þeirra hjá félaginu eða vilja nýta réttindi sín samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga geta þeir sent erindi til:
hallo@jonsbok.ai
Einstaklingar eiga rétt á að beina kvörtun til Persónuverndar í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og geta lagt fram kvörtun með því að senda tölvupóst á netfangið postur@personuvernd.is. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Persónuverndar, www.personuvernd.is.
Tengiliðaupplýsingar
Ef þú hefur spurningar um þessa persónuverndarstefnu eða vinnslu persónuupplýsinga þinna, vinsamlegast hafðu samband við okkur á hallo@jonsbok.ai.
Breytingar
Félagið áskilur sér rétt til að gera breytingar á ofangreindu án fyrirvara. Ný útgáfa persónuverndarstefnu tekur gildi um leið og hún er birt á heimasíðu félagsins.
Þessi persónuverndarstefna tekur gildi 1. janúar 2025.
Síðast breytt 7. október 2025