Jónsbók

Lögfræðingur - Viðskiptaþróun & Sala

Sameinaðu lögfræðilega innsýn, viðskiptaþróun og sölu til að stækka Jónsbók á nýjum mörkuðum.

Viðskiptaþróun og lagatækni hjá Jónsbók

Yfirlit

Leiddu vöxt í lagalegri gervigreind

Hlutverkið vinnur beint með stofnendum og teymi að markaðsútvíkkun og framúrskarandi viðskiptavinaupplifun. Þú tengir saman lögfræðilegan skilning, sölu og vöruþróun til að knýja fram raunverulegan árangur.

Helstu verkefni

Leiða sölu og viðskiptaþróun frá tækifæri til samnings.
Kynna vöruna og útskýra virði hennar fyrir lögfræðingum og fyrirtækjum.
Byggja og rækta sambönd við lykilaðila á markaði.
Þróa go-to-market: verðlagningu, skilaboð, söluefni og ferla.
Koma endurgjöf viðskiptavina inn í vöruþróun.
Styðja við onboarding og fyrstu skref viðskiptavina.
Taka þátt í uppbyggingu nýrra markaða, með ferðalögum eftir þörfum.

Þú gætir passað ef þú

Ert lögmaður eða með sterka þekkingu á lögfræðilegum vinnubrögðum.
Hefur reynslu af sölu, viðskiptaþróun eða ráðgjöf (B2B kostur).
Hefur áhuga á tæknivörum og nýtur þess að læra nýja hluti.
Þrífst í óvissu og leysir verkefni þar sem lausnin er ekki augljós.
Tekur ábyrgð, sýnir frumkvæði og ert mannblendin/n.
Getur miðlað flóknum málum á skýran og skiljanlegan hátt.

Kostir

Reynsla af lögmanns- eða lögfræðistörfum.
Reynsla af markaðssetningu og herferðum.
Reynsla af CRM/sölupípulínu og samningsferlum.
Reynsla af tengslaneti, viðburðahaldi eða samfélagsvirkjun.

Af hverju Jónsbók?

Raunveruleg áhrif á stefnu, vöxt og vöru.
Tækifæri til að móta notkun gervigreindar í lögfræði.
Hraðskriðið teymi með viðskiptavini á Íslandi og erlendis.
Möguleiki á þátttöku í uppbyggingu nýrra markaða.
Samkeppnishæf kjör og möguleiki á árangurstengingu.

Reykjavík

Staðsetning

Fullt starf

Starfshlutfall

Lögfræði + Sala

Áhersla

Sækja um á Alfreð

Opnaðu auglýsinguna og umsóknarferlið á Alfreð.

Opna starf
Lögfræðingur - Viðskiptaþróun & Sala | Jónsbók