Jónsbók

Hugbúnaðarverkfræðingur (AI & Gögn)

Taktu þátt í að byggja gervigreindarlausnir fyrir lögfræðinga með LLM, gagnavinnslu og vöruþróun.

Yfirlit

Byggðu lagatækni með gervigreind frá enda til enda

Jónsbók byggir gervigreindarhugbúnað fyrir lögfræðinga á Íslandi, í Ungverjalandi og víðar í Evrópu. Í þessu hlutverki vinnur þú þvert á LLM, gagnalíkön og notendaupplifun með raunveruleg áhrif á vöru og tæknistefnu.

Gervigreind og hugbúnaðarþróun hjá Jónsbók

Helstu verkefni

Vinna með tungumálalíkön (LLM) sem skilja flókinn lögfræðilegan texta.
Hanna og útfæra gagnalíkön fyrir flóknar lögfræðilegar fyrirspurnir.
Nýta nýjustu eiginleika tungumálalíkana og agentic-verkfæra.
Þróa LLM-agenta fyrir sjálfstæð, fjölþætt verkefni.
Hanna skilvirkar leitaraðferðir og gagnavinnsluflæði.
Hanna AI-miðuð notendaviðmót fyrir lögfræðilega notkun.
Skrifa próf og tryggja gæði kerfisins.

Þú gætir passað ef þú

Hefur reynslu af hugbúnaðarþróun í Python og/eða TypeScript.
Hefur reynslu af gagnapípum og annarri gagnavinnslu.
Hefur reynslu eða áhuga á UI/UX hönnun og þróun.
Hefur mikinn áhuga á nýjustu LLM/agentic tækni.
Ert fljót/ur að tileinka þér ný verkfæri og vinnubrögð.
Tekur ábyrgð, sýnir frumkvæði og vinnur vel í óvissu.

Kostir

Reynsla af þróun gervigreindarhugbúnaðar.
Reynsla af vinnu með LLM og helstu framework á því sviði.
Vilji og hæfni til að vinna þvert á gögn, gervigreind og framenda.

Hjá Jónsbók færð þú

Mikil áhrif í ört vaxandi sprota.
Ábyrgð á vöru fyrir notendur á Íslandi og erlendis.
Daglega vinnu með nýjustu tækni í gervigreind.
Tækifæri til að móta notkun AI í lögfræði.
Samkeppnishæf kjör og möguleika á hlutabréfaréttindum.

Reykjavík

Staðsetning

Fullt starf

Starfshlutfall

AI + Gögn

Áhersla

Sækja um á Alfreð

Opnaðu auglýsinguna og umsóknarferlið á Alfreð.

Opna starf
Hugbúnaðarverkfræðingur (AI & Gögn) | Jónsbók